Björgvin Svan Mánason, gítarleikari glysrokksveitarinnar Slysh, fetar nú sín fyrstu spor sem sólólistamaður en hann sendi frá sér sitt fyrsta lag á dögunum.
Lagið nefnist Broken Wings og er hugljúf kassagítarballaða. Björgvin fékk til liðs við sig hálfbróður sinn, Chris Haux, fyrrum söngvara hljómsveitarinnar RedLine.
Lagið má finna á öllum helstu streymisveitum og einnig hér að neðan.