Blessað barnalán í Hveragerði

Leikfélag Hveragerðis æfir nú af kappi leikritið Blessað barnalán eftir Kjartan Ragnarsson.

Leikstjóri er Sigurður Blöndal sem enn á ný leggur leikfélaginu til krafta sína. Fyrsta leikritið sem hann leikstýrði fyrir tíu árum síðan var Týnda teskeiðin, einnig eftir Kjartan. Sigurður leikstýrði einnig Emil í Kattholti, Dýrunum í Hálsaskógi og Kardemommubænum hjá Leikfélagi Hveragerðis sem öll hafa náð metaðsókn.

Leikarar í Blessuðu barnaláni eru ellefu og með helstu hlutverk fara Hafdís Guðmundsdóttir, Aðalheiður Ásgeirsdóttir, Guðmundur Erlingsson og Viktoría Kristinsdóttir. Til gamans má geta þess að tvær dætur Viktoríu þær Þórey og Aðalheiður fara einnig með hlutverk í leiknum. Þórey sem er ung að aldri fór með eitt af aðalhlutverkum í sýningunni Galdra Lofti sem sýnd var fyrir áramót og vakti verðskuldaða athygli.

Leikritið er sprenghlægilegur farsi sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Stefnt er að frumsýningu um næstu mánaðarmót.

Fyrri greinSkjálfti og skipsflök í Landanum
Næsta greinSumartónleikar fengu Eyrarrósina