Jóladagskrá Byggðasafns Árnesinga hefur verið árviss viðburður í 25 ár og fastur hluti af starfsemi safnsins. Ekki verður brugðið út af venjunni frekar en áður og jólin á safninu halda innreið sína með sínum föstu liðum sem eru jólasýning og bókaupplestur.
Lesið verður úr nýútkomnum bókum í stássstofu Hússins á Eyrarbakka laugardaginn 2. desember kl. 16-18. Fimm rithöfundar lesa úr verkum sínum. Guðríður Haraldsdóttir les úr bókinni Anna Eins og ég er um magnað lífshlaup Önnu Kristjánsdóttur. Einar Már Guðmundsson les úr sinni eldfjörugu skáldsögu Passamyndum. Guðmundur Brynjólfsson les svo úr skáldsögu sinni Tímagarðurinn um reynsluheim íslenskra karlmanna. Margrét Lóa Jónsdóttir kynnir og les úr ljóðabókinni biðröð framundan. Ásta Kristrún Ragnarsdóttir færir okkur inn í heim formæðra sinna í bókinni Það sem dvelur í þögninni.
Jólasýning safnsins verður opin sama dag kl. 13-16 og músastiga-vinnusmiðja verður í Kirkjubæ kl. 13-15. Á jólasýningunni gefur að líta gömul jólatré og jólatengda muni sem safninu hefur áskotnast af fólkinu í héraðinu í gegnum tíðina. Í öndvegi verður jólatréð frá Hruna sem Jón Jónsson í Þverspyrnu er sagður hafa smíðað fyrir jólin 1873 og talið er elsta varðveitta jólatré landsins. Jólatréð hefur eignast tvíbura í endurgerð þess smíðaðri af Guðmundi Magnússyni í Steinahlíð árið 2017.
Jólasýningin verður svo opin sunnudagana 3. og 10. des. kl. 13-17 og fyrir hópa eftir samkomulagi. Sönghópurinn Lóurnar tekur lagið sunnudaginn 10. desember kl. 14:30 og syngur nokkur falleg jólalög.
Kaffi og smákökur að venju í eldhúsi Hússins, allir velkomnir og aðgangur ókeypis.
Uppbyggingasjóður Suðurlands styrkir jóladagskrána.