Byssusýning um helgina

Árleg byssusýning Veiðisafnsins á Stokkseyri í samvinnu við verslunina Vesturröst verður haldin um helgina og er hún opin kl. 11–18 í dag og á morgun í húsakynnum Veiðisafnsins á Eyrarbraut 49.

Verður þar fjölbreytt úrval skotvopna til sýnis svo sem haglabyssur, rifflar, skammbyssur, herrifflar ásamt ýmsu frá landskunnum söfnurum m.a úr einkasöfnum frá Sverri Scheving Thorsteinssyni, Sigurði Ásgeirssyni, Einari frá Þverá og Drífu-haglabyssur frá Jóni Björnssyni heitnum frá Dalvík.

Jóhann Vilhjálmsson byssu- og hnífasmiður verður á staðnum og kynnir sín verk og félagar úr Bogveiðifélagi Íslands kynna sína starfsemi og sýna veiðiboga.

Allt áhugafólk um skotvopn og veiðar er velkomið, aðgangseyrir er kr. 1.250 fyrir fullorðna og 650 kr. fyrir börn 6-12 ára.

Fyrri greinMögulega mesti mældi sandstormur jarðar
Næsta greinSelfoss tapaði fyrir Stjörnunni