Lag Daða Freys og Gagnamagnsins Think About Things fór beint í 34. sæti breska vinsældalistans þegar hann var kynntur í gær.
RÚV greinir frá þessu og segir að Daði feti þar í fótspor Mezzoforte, Sykurmolanna, Bjarkar, Mána Svavarssonar, Öldu, Nylon, Sigur Rósar og Bellatrix svo einhver íslensk nöfn séu nefnd.
Kynnir vinsældalistans, Scott Mills staðhæfði að Think About Things hefði að öllum líkindum sigrað í Eurovision keppninni … hefði hún verið haldin.