Dagur íslenskrar tungu og tónlistar í eina sæng

Það var góð stemning í Vallaskóla á degi íslenskrar tónlistar og tungu. Ljósmynd/Aðsend

Nemendur og starfsmenn Vallaskóla héldu dag íslenskrar tungu og tónlistar sameiginlegan og hátíðlegan miðvikudaginn 27. nóvember síðastliðinn.

Þá var sett upp flott dagskrá í íþróttasal skólans þar sem nemendur og starfsfólk komu saman. Dagskráin hófst á ljóðaflutningi þeirra Halldórs og Úlfs úr 8. árgangi en þeir sigruðu Stóru upplestrarkeppna á síðasta skólaári. Því næst steig lið Vallaskóla sem keppti í og sigraði listakeppnina Skjálftinn á dögunum og sýndi sitt glæsilega atriði.

Í kjölfarið tóku nemendur undir með starfsmannahljómsveitinni Í grænum fötum og sungu undir í lögunum Húsið og ég og Snjókorn falla. Með þeirri framkomu var gerð atlaga að íslandsmeti í fjöldasöng. Að lokum steig starfsmannagrúbban Vice Guys trylltan dans með nemendum við undirleik jólalagsins Þessi týpísku jól.

Sannarlega dásamleg og vel heppnuð samvera í Vallaskóla.

Vice Guys stigu trylltan dans. Ljósmynd/Aðsend
Lið Vallaskóla sýndi siguratriðið úr Skjálfta. Ljósmynd/Aðsend
Halldór og Úlfur lásu ljóð. Ljósmynd/Aðsend
Fyrri greinHafði áhyggjur af því hvar best væri að geyma vinningsmiðann
Næsta greinUnnið dag og nótt við viðgerð á borholu