Örmyndirnar „Ég er Ísland – Suðurland í mannsmynd“ verða frumsýndar í dag kl. 18 í Listasafni Árnesinga í Hveragerði.
Um er að ræða fimm örmyndir sem innihalda stutta persónulega frásögn nokkurra Sunnlendinga.
Þær festa á filmu áhrifaríka staði, stórbrotna náttúru, upplifun af Suðurlandi, menningu, sögur, raunir, tilfinningar og fegurð – Suðurland í mannsmynd.
Örmyndirnar Ég er Ísland – Suðurland í mannsmynd fjalla um Sölva Arnarson bónda í Efstadal í Bláskógarbyggð þar sem meðal annars er hægt að kaupa veitingar beint frá býli í fyrrum hlöðu, Esther Helgu Klemenzardóttur leikkonu í Hveragerði sem vakti verulega athygli þegar hún lék Línu langsokk með Leikfélagi Hveragerðis, Jón Tryggva og Uni á Merkigili, tónlistarmenn sem opnuðu hús sitt fyrir tónlistaruppákomur, Ernu Elínbjörgu Skúladóttur leirkerasmið með meiru í Bragganum í Birtingarholti við Flúðir og Ólaf Sigurjónsson að Forsæti í Flóahreppi sem setti á stofn Tré og list þar sem varðveitt er saga handverks og uppfinninga ábúenda.
Örmyndirnar eru framleiddar af All Around Us productions, með styrk frá Menningarráði Suðurlands. All Around Us stofnuðu Halldóra Rut Baldursdóttir og Harpa Fönn Sigurjónsdóttir fyrir um fjórum árum, er þær ferðuðust um landið í þeim tilgangi að fanga þau gildi sem eru allt í kringum okkur í hversdagsleikanum. Í kjölfarið hófu þær framleiðslu örmynda með persónulegri nálgun á fólk og þjóð – en það er einmitt fólkið sem gerir landið og menninguna.
Við frumsýninguna verður örmyndunum varpað á vegg í stóru formati og með uppákomum býðst gestum einnig einnig tækifæri til þess að kynnast betur því sem fjallað er um.
Örmyndirnar verða sýndar áfram á skjá í safninu til 22. júní nk.