Einstök hugmynd um landslag, landlist og umhverfisstefnu

Erna Skúladóttir.

Norðrið, samsýning listamanna frá Íslandi, Svíþjóð og Finnlandi verður opnuð í Listasafni Árnesinga næstkomandi laugardag, þann 19. september.

Norðrið einblínir á Norðurlöndin og hið breytilega umhverfi þeirra, og skoðar þau áhrif sem náttúrubreytingar eru að hafa á hugmyndir og tjáningu listamanna, út frá veðurfarsbreytingum, sér í lagi veðurfari Skandinavíu. Sem tilraun til að setja skilning í þessar hröðu breytingar á landslagi Norðurlanda, staðhæfa listamennirnir sem valdir voru, að óstöðugleiki og breytingar séu nauðsynlegur hluti náttúrunnar. Þar sem áhrif veðurfarsbreytinga á Norðurlöndin hafa í för með sér óvissu með framtíð þess landslags sem við þekkjum, setja þessir sex listamenn fram nýja sýn á tilgang og stöðu mannsins, og nýta sér list sína til að komast í sátt við breytingu og endursköpun náttúrunnar.

Listamennirnir Arngunnur ÝrErna SkúladóttirUlrika Sparre, Pétur ThomsenIngibjörg Friðriksdóttir, og Nestori Syrjälä setja fram blöndu af tjáningu, allt frá gagnrýnum heimildum til ljóðrænna ákalla.

Hvernig getum við aftur tengst hinu ómennska og tjáð náttúruna, tengst aftur landslagi og umhverfi sem hin ágenga mannskepna er að rífa í sundur, og skoðað náttúru sem er ekki bara bara “annað en maðurinn”? Við teljum náttúruna, fjallið, vera stöðugt, óbreytilegt, gegnheilt – staðfastan minnisvarða umhverfis okkar, en þessi verk viðurkenna hversu hverful hún í rauninni er.

Útkoman verður fegurð, viðkvæm, en þó sterk, og leið til að rísa upp á ný. Þau búa til einstaka hugmynd um landslag, landlist og umhverfisstefnu, bjóða fram nýja sköpun og draumórakennt umhverfi, en á sama tíma viðurkenna þau þá staðreynd að umhverfið sem við þekkjum er að hverfa. Þessir listamenn leiða okkur blíðlega aftur í átt að náttúrunni, moldinni, landinu, jörðinni, náttúruöflunum, og leyfa okkur að einbeita okkur að fegurð hennar/þess frekar en þyngsli mannhverfra sjónarmiða. Þau taka burtu hið mennska og færa okkur aftur til jarðneskra róta okkar með því að sýna okkur hinn harkalega sannleik um stöðu náttúrunnar, án þess að skafa utan af því.

Arngunnur Ýr.
Nestori Syrjala.
Pétur Thomsen.
Ulrika Sparre.
Fyrri grein„Virkilega gaman að hitta krakkana í Hvolsskóla“
Næsta greinTelma og Bjarni héraðsmeistarar í golfi fatlaðra