Nú um helgina mun listmálarinn Elfar Guðni verða með sýningu á Vestfjarðamyndunum, sem hann nefnir Frá Djúpi til Dýrafjarðar, í sýningarsalnum í Svartakletti í Menningarverstöðinni á Stokkseyri.
Elfar Guðni dvaldi í haust í þrjár vikur í Mannlífs- og menningarsetri Önfirðingafélagsins að Sólbakka 6 á Flateyri og málaði vestfirska náttúru.
Sýningin verður opin frá föstudegi til sunnudags kl. 14-18. Hún verður síðan opin alla laugardaga og sunnudaga út nóvember kl. 14-18.