Fjórðu og næstsíðustu tónleikar tónlistarhátíðarinnar Englar og menn í Strandarkirkju verða næstkomandi sunnudag, 9. ágúst, kl. 14.
Á tónleikanum koma Eyjólfur Eyjólfsson tenór, Hugi Jónsson baritón og Kári Allansson organisti.
Yfirskrift tónleikanna er ,,Baðstofan og kirkjuloftið“ en á tónleikunum munu þeir félagar flytja tónlist sem hljómaði í baðstofum torfhúsanna og sveitakirkjum landsins. Undir söng verður leikið á langspil og harmóníum, en hljóðfærin spiluðu stórt hlutverk í tónlistarlífi Íslendinga á 19. öld.
Tónleikarnir hefjast kl. 14 og eru um klukkustundar langir.
Björg Þórhallsdóttir sópransöngkona er listrænn stjórnandi og framkvæmdastjóri hátíðarinnar, sem er styrkt af Menningarráði Suðurlands, Tónlistarsjóði og Strandarkirkjunefnd. Aðgangseyrir að tónleikunum er 1.500 kr. Ekki er tekið við greiðslukortum.
Strandarkirkja er þekkt áheitakirkja og þykir þar vera sérstakur kraftur til hjálpar og bænheyrslu. Yfirskrift hátíðarinnar vísar til helgisagnarinnar um fyrstu kirkjuna þar, um ljósengilinn sem birtist sæförum í sjávarháska og þeir hétu á í örvæntingu sinni. Hann vísaði þeim að landi og þeir reistu þar kirkju í þakklætisskyni. Í Selvogi var fyrr á öldum blómleg byggð með útgerð og landbúnaði en nú er þar orðið strjálbýlt. Fjölmargir ferðamenn heimsækja Selvoginn og þar má njóta útivistar á fallegum gönguleiðum. Með tilkomu nýja Suðurstrandarvegarins hafa samgöngur stórbatnað og ferðamöguleikar orðið fjölbreyttari. Að tónleikum loknum er svo upplagt að fá sér kaffi og kræsingar hjá heimamönnum í kaffihúsinu T-bæ eða í Pylsuvagninum.
Nánari upplýsingar um dagskrána er að finna á vef Strandarkirkju og á Facebooksíðu hátíðarinnar.