Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tengdi saman sögu og tilurð kirkjustaðarins Odda sem hluta af menningarsögulegu og sameiginlegu minni Íslendinga við samfélagsmiðla nútímans í erindi sem hún flutti á 30 ára afmælishátíð Oddafélagsins á Rangárvöllum í dag. Ennfremur ræddi hún mikilvægi slíkra menningar- og fræðasetra fyrir landið allt.
„Sæmundur fróði dagsins í dag væri vafalaust aðsópsmikill á nýjum miðlum, til dæmis á tístinu og myndi þar fremja galdra sína með því að vera frumlegri en aðrir tístarar. Kannski sæti hann bara á kaffihúsi í Reykjavík enda þyrfti hann ekki annað en síma og 4G. Og það má velta því fyrir sér hvort hann myndi ná til fleiri nú en hann gerði á sínum tíma því vissulega voru sagnarit þess tíma ekki fyrir alla – sagnaritarar voru staddir í bergmálshelli alveg eins og þeir sem tjá sig á forritunum í samtímanum,“ sagði Katrín í ávarpi sínu.
Í tilefni afmælisins var boðið til mikillar tónlistarhátíðar í Odda þar sem Sinfóníuhljómsveit Suðurlands, Kvennakórinn Ljósbrá og Karlakór Rangæinga, félagar úr Kammerkór Rangæinga og Eyjólfur Eyjólfsson, einsöngvari, sungu og spiluðu fyrir gesti.