Frumsýning á Selfossi í kvöld

Leikfélag Selfoss frumsýnir í kvöld leikritið Þrek og tár eftir Ólaf Hauk Símonarson í leikstjórn Lilju Nóttar Þórarinsdóttur. Um fjörutíu manns koma að sýningunni innan sviðs og utan.

Í verkinu fáum við að fylgjast með upprifjun ungs manns á æskuárum sínum og lífi ósköp venjulegrar fjölskyldu á sjötta áratugnum en verkið hefur verið staðfært og gerist á Selfossi. Mörg kunnug og skemmtileg dægurlög prýða verkið og ekki ólíklegt að leikhúsgestir finni hjá sér þörf að tralla aðeins með. Sögur persónanna fléttast saman, draugar fortíðar vakna og draumar framtíðar birtast. Það er bæði hlegið og grátið og allt þar á milli.

Þrek og tár var fyrst frumsýnt í Þjóðleikhúsinu árið 1995 og naut mikilla vinsælda, enda hefur Ólafur Haukur jafnan átt auðvelt með að rýna inní sálartetur okkar Íslendinga. Það er samt magnað og umhugsunarvert að verk sem skrifað er og frumsýnt 1995 um íslenskan veruleika í kringum 1960 skuli enn þann dag í dag eiga við okkur jafn mikið erindi. Pólitískt pex, peningamenn, ást og útrás, æðri menntun og músík.

Leikfélag Selfoss er eitt af elstu og afkastamestu áhugaleikfélögum landsins sem hefur á sínum snærum fjöldan allan af hæfileikaríku fólki, jafnt til að starfa fram- og baksviðs. Aðalhlutverkið, Davíð, er í höndum Ármanns Ingunnarsonar sem stendur nú í fyrsta sinn á sviðinu í Sigtúninu. Meðal annarra leikara má nefna Sigurgeir Hilmar, Kolbrúnu Lilju Guðnadóttur, Ella Hafliðason og Erlu Dan Jónsdóttur sem leikhúsgestir á Selfossi kannast eflaust vel við.

Fyrri greinÖruggt hjá Þór gegn ÍR
Næsta grein„Spennan fyrir umbótunum leyndi sér ekki“