Fyrsta skáldsaga Skúla Thoroddsen

Ína er fyrsta skáldsaga Skúla Thoroddsen lögfræðings. Í bakgrunni sögunnar eru atburðir sem áttu sér stað við Öskju árið 1907 þegar tveir Þjóðverjar, jarðfræðingur og listamaður, hurfu þar sporlaust.

Unnusta annars þeirra, hin listhneigða og prússneska Ína, kemur til Íslands ári síðar að leita skýringa á því sem gerðist.  

Leið hennar liggur víða um óbyggðir Íslands og kynni hennar af náttúru landsins reynast afdrifarík. Ína er marglaga saga þar sem teflt er saman hræringum í evrópskum lista- og fræðaheimi, umbrotum í mikilfenglegri náttúru á hálendi Íslands og heitum tilfinningum.

Skúli Thoroddsen er fæddur í Reykjavík árið 1949. Hann er lögfræðingur að mennt og hefur áður sent frá sér ljóðabókina. Í ljósi tímans (2002). Ína er hans fyrsta skáldsaga. Það er bókaútgáfan Sæmundur á Selfossi sem gefur bókina út.

Fyrri greinÖlfusingar beðnir um að fara vel með heita vatnið
Næsta greinBjörgunarsveit aðstoðaði við sjúkraflutninga