Gísli sýnir í Listagjánni

Gísli Sigurðsson mun opna sýningu á málverkum og teikningum í Listagjánni í Bókasafninu á Selfossi á sumardaginn fyrsta.

Gísli er fæddur þann 23. nóvember 1931 í Vestmannaeyjum. Hann tók stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík 1954 og hélt síðan til Vínarborgar og nam efnafræði við Technische Hochschule þar.

Þegar heim var komið settist hann að á Selfossi og hóf að kenna við Gagnfræðaskólann á Selfossi. Þegar Fjölbrautaskóli Suðurlands hóf störf gerðist hann kennari þar og hefur því kennt samtals í 40 ár.

Gísli hóf snemma að teikna og mála. Í Vínarborg komst hann í kynningu við teppagerð og hefur búið til þónokkur teppi þar sem saman fer ull,viður og málmur. Á seinni árum hefur hann frekar snúið sér að málverkinu, fyrst pastel en síðar að olíunni.

Hann hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum auk sýningar með Ruth Hansen í nóvember 1985 á Selfossi og með dóttur sinni, Katrínu, sem sýndi leirlist, í Reykjavík í apríl 2009.

Fyrri greinGrýlupottahlaup 1/2015 – Úrslit
Næsta greinHSK vann tvo flokka