Björn Thoroddsen heldur tónleika í Sólheimakirkju í dag kl. 14 þar sem hann mun leika af fingrum fram.
Í Sesseljuhúsi mætir Ragnhildur Jónsdóttir sjáandi kl. 15 og fræðir og ræðir um álfheima og orku í íslenskri náttúru.
Verslunin, kaffihúsið og einstakar sýningar verða opnar frá kl 12:00 til 18:00. Einnig minnum við á að plöntusalan verður opin á sama tíma.