Ungmennafélag Gnúpverja hyggst setja á svið leikverk eftir Vilborgu Halldórsdóttur byggðu á örlagasögu þeirra Gauks Trandilssonar og Þuríðar á Steinastöðum.
Nú þegar er kominn vísir að leikhópi og hefst leiklestur sunnudaginn 31. október kl. 14 í Þjórsárskóla. Æfingar hefjast í lok janúar á næsta ári og frumsýnt verður fyrir páska 2011.
Ungmennafélagið er að leita eftir fleiri áhugasömum leikurum og geta áhugasamir haft samband við Sigrúnu í Fossnesi í síma 486-6079 og á fossnes@uppsveitir.is