Hafliðadagurinn verður haldinn hátíðlegur með menningardagskrá í Bókakaffinu á Selfossi miðvikudaginn 16. júlí klukkan 17 -18.
Það eru Bókakaffið, Hrútavinafélagið Örvar og Vestfirska bókaútgáfan sem standa að dagskránni sem er haldin ár hvert í minningu Hafliða Magnússonar (1935-2011) rithöfundar og listamanns frá Bíldudal.
Lesið verður úr verkum Hafliða og rithöfundar og skáld koma fram. Dagskráin er enn í mótun en vitað er að eftirtaldir munu stíga á stokk:
Skagfirðingurinn Kristján Runólfsson í Hveragerði
Ingibjörg Elsa Björnsdóttir, þýðandi, ljóðskáld og sagnahöfundur
Ólafur Helgi Helgi Kjartansson rithöfundur og sýslumaður
Benedikt Jóhannsson ljóðskáld frá Stóru Sandvík
Menningarkakó Hrútavinafélagsins verður á sérstöku tilboðsverði og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.