Samstarfsfundir um greiningu á ljósmyndum úr safni Héraðsskjalasafns Árnesinga snúa nú aftur eftir sumarfrí.
Um er að ræða vettvang þar sem fólk kemur saman og leitast við að nafngreina fólk, staði og fleira á ljósmyndum úr fórum safnsins. Fimm fundir af þessu tagi voru haldnir síðasta vor og voru mjög vel sóttir.
Fyrsti fundur verður föstudaginn 22. september kl. 10:00- 12:00 í sal á 3. hæð Ráðhúss Árborgar. Gert er ráð fyrir að þessir fundir verði annan hvern föstudag eitthvað fram á veturinn og verður næsti fundur þar á eftir þar af leiðandi á sama stað og sama tíma föstudaginn 6. október.
Í tilkynningu frá safninu er fólk hvatt til að mæta á þessa fundi og eiga skemmtilega samverustund.
Uppbyggingarsjóður Suðurlands styrkir verkefnið.