Harald vekur athygli fyrir sitt fyrsta lag

Tónlistarmaðurinn HARALD. Ljósmynd/Aðsend

Tónlistarmaðurinn HARALD sendi frá sér sitt fyrsta á dögunum en hann er tuttugu og eins árs og kemur frá Kópavogi.

HARALD, sem réttu nafni heitir Haraldur Fannar Arngrímsson er ættaður frá Selfossi og á stóran frændgarð á Suðurlandi en faðir hans er Arngrímur Fannar Haraldsson, gítarleikari Skítamórals.

Haraldur Fannar er er alin upp umvafin tónlist og byrjaði snemma að læra á hljóðfæri og er jafnvígur og gítar og píanó og syngur sjálfur. Lagið er það fyrsta í röð af lögum sem koma munu út á næstunni og mynda EP plötu sem kemur út í vor. Lagið heitir Fullkomin og er uppgjör við ástina og fortíðina.

„Þetta er sjálfskoðun, uppgjör og það sem er að brjótast í höfðinu á ungum manni. Það er vandratað í hávaðanum og ofbirtunni sem villa manni sýn þarna úti í lífinu en þetta eru tilfinningarnar sem koma þegar maður slekkur á öllu, lokar augunum og hlustar á hjartað,” segir Haraldur Fannar.

Böskaði í miðbæ Reykjavíkur
HARALD hefur komið fram víða þrátt fyrir ungan aldur og aðeins rétt rúmlega þrettán ára fór hann að troða upp einn síns liðs í miðborg Reykjavíkur fyrir gesti og gangandi.

„Það vara bara rosalega öflug og þroskandi leið til að hrista af sér alla feimni og allan framkomu skrekk. Ég fór bara í strætó niður í bæ, opnaði gítarkassann og stillti honum á götuna fyrir framan mig og byrjaði að spila og fólk hópaðist bara að mér og hendi peningum í töskuna og söng með. Sumir strunsuðu bara fram hjá en aðrir gáfu sig á tal við mig og báðu mig um óskalög og gerði bara mitt besta að gleðja fólk,” segir hann.

„Síðan hef ég lagt mig fram um að koma fram og spila eins og ég get. Ég fór í ferðlag um Argentínu í eitt ár og þar drakk ég í mig allskonar tónlistarmenningu og strauma,” bætir hann við en árin 2018 og 2019 dvaldi hann langdvölum í Suður-Ameríku. „Svo er það bara að spila, semja og spá og spekúlera í tónlist og nú finnst mér ég vera kominn með hljóðheim sem mér líður vel með og er tilbúinn að deila þessu með fleirum.“

Engar skyndilausnir í þessu
HARALD segir að það séu engin töfrabrögð í þessu, bara vinnusemi og þrautseigja.

„Ég bý að því að eiga nokkra mjög sjóaða ráðgjafa í mínum nánasta fjölskylduhring en þeirra ráðleggingar hafa alltaf verið á eina leið. Spila, spila og spila meira og svo spila aðeins meira eftir það. Þeir hafa verið mjög skýrir á því við mig að þeir verðir mér alltaf innan handar en um leið sagt mér að það séu engar skyndilausnir í þessu frekar en öðru. Þess vegna hef ég lagt svo mikla áherslu á að finna minn hljóm og minn stað áður en ég færi að gefa eithvað út. En þess vegna er ég líka spenntur að sjá og heyra viðbrögð við þessu,“ segir tónlistarmaðurinn ungi að lokum.

Fyrri greinÞollóween í þriðja sinn
Næsta greinSteypt slitlag á brú yfir Steinavötn