Hátíðartónleikar í kirkjum Rangárþings

Kammerkór Rangæinga ásamt Rut Ingólfsdóttur og Guðjóni Halldóri Óskarssyni. Ljósmynd/Aðsend

Kammerkór Rangæinga heldur tvenna hátíðartónleika á föstunni en kórinn mun ásamt einsöngvurum flytja þætti úr Messíasi eftir Georg Friedrich Händel.

Tónleikarnir verða haldnir í Þykkvabæjarkirkju 27. mars kl. 20:00 og í Breiðabólstaðarkirkju í Fljótshlíð 3. apríl kl. 20:00.

Allir þeir sem fram koma eru búsettir eða kenna í Rangárþingi en einsöngvarar á tónleikunum eru Þórunn Elfa Stefánsdóttir, sópran, Aðalheiður Margrét Gunnarsdóttir, mezzosópran, Sigríður Aðalsteinsdóttir, alt og Bjarni Guðmundsson, tenór. Rut Ingólfsdóttir leikur á fiðlu og Guðjón Halldór Óskarsson, sér um orgelleik og kórstjórn.

Fyrri grein„Ástandið vægast sagt alvarlegt“
Næsta greinHvolsskóli sigraði í Suðurlandsriðlinum