Eins og hefð er um verslunarmannahelgina verður helgistund í bænhúsinu á Núpsstað kl. 14:00 í dag.
Sr. Ingimar Helgason leiðir stundina og meðlimir úr kirkjukór Prestsbakkakirkju og Ásakórsins leiða söng undir stjórn organistans Zbigniew Zuchowicz.
Vegna ástandsins í þjóðfélaginu verður ekki boðið upp á kaffiveitingar að lokinni athöfn. Einnig eru allir beðnir um að sinna sóttvörnum og fjarlægð milli ótengdra. Grímuskylda er inni í bænhúsinu.