Leikfélag Hveragerðis æfir nú af kappi leikritið Dýrin í Hálsaskógi í leikstjórn Maríu Pálsdóttur. Áætlað er að frumsýna þann 20. febrúar ef allt gengur upp.
Leikarar eru rúmlega tuttugu og eru þeir á ýmsum aldri, reyndir í bland við aðra sem eru að stíga sín fyrstu skref á sviðinu.
Mikka ref og Lilla klifurmús leika nú í þriðja sinn þeir Hjörtur Benediktsson og Steindór Gestsson sem sjást þarna í fullum skrúða á myndinni. Tuttugu og sex ár eru síðan þeir léku þessi hlutverk fyrst.
Guðmundur Eiríksson annast píanóleik. Aðrir sem að þessari vinnu koma eins og sviðsmynd, búningasaum, andlitsmálun og fleira eru hátt í tuttugu manns.