Hvað á húsið að heita?

Búðarstígur 22 á Eyrarbakka. Ljósmynd/Byggðasafn Árnesinga

Byggðasafn Árnesinga flytur á næstu vikum innri starfsemi sína í Búðarstíg 22 á Eyrarbakka sem byggt var á tímabilinu 1970-1983 sem fiskvinnsluhús.

Um langt skeið var þar rekin álpönnuverksmiðja en Byggðasafn Árnesinga keypti húsið árið 2019. Síðan þá hafa iðnaðarmenn verið að störfum og er verið að aðlaga húsið að þörfum safnsins. Í húsinu verður varðveisluaðstaða fyrir safnkostinn, vinnuaðstaða, skrifstofur starfsmanna og fjölnota sýningarsalur.

Finna þarf húsinu þjált og gott heiti. Byggingarnefnd byggðasafnsins leitar nú til almennings um tillögu að heiti fyrir nýju aðstöðuna að Búðarstíg 22. Senda má tillögu á netfangið info@byggdasafn.is ásamt rökstuðningi fyrir nafninu.

Fyrri greinGuðrún Þóra í Selfoss
Næsta greinHafdís gefur kost á sér í 3. sæti