Í kvöld, mánudaginn 18. desember, mun hljómsveitin Hvar er Jónas? halda jólatónleika á Midgard Base Camp á Hvolsvelli.
Söngvarar hópsins eru þeir Pétur Oddbergur Heimisson og Bjarni Guðmundsson sem hafa heimsótt Suðurlandið síðustu ár með sönghópnum Olgu. Bjarni Guðmundsson á ættir sínar að rekja á Hellu.
Jón Elísson leikur á hljómborð, Grímar Helgason á klarinett og Sigmar Matthíasson á kontrabassa og Bjarni mun grípa í gítarinn ef tækifæri gefst til.
Flutt verða létt jólalög í bland við nokkur klassísk. Það ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi og strákarnir lofa skemmtilegu kvöldi.
Tónleikarnir hefjast kl. 20:30 og aðgangseyrir er kr. 2.000, hægt verður að greiða með korti.