Í átjánda sinn auglýsa Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Icelandair nú eftir umsóknum um Eyrarrósina. Viðurkenningin er veitt framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni sem hefur fest sig í sessi. Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 miðvikudaginn 13. apríl.
Meðal fyrri verðlaunahafa má nefna Sumartónleika í Skálholti, Þjóðlagahátíðina á Siglufirði, Bræðsluna á Borgarfirði eystra, Frystiklefann á Rifi, Aldrei fór ég suður, Ferska vinda í Garði, List í ljósi á Seyðisfirði, Skjaldborg á Patreksfirði og nú síðast brúðuleikhúsið Handbendi á Hvammstanga.
Eyrarrósarhafinn hlýtur 2,5 milljón króna peningaverðlaun, gert verður myndband um verkefnið og því gefinn kostur á því að standa að viðburði á aðaldagskrá Listahátíðar í Reykjavík 2024.
Að auki verða veitt þrenn hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar til verkefna sem hafa verið starfrækt í minna en þrjú ár. Hver hvatningarverðlaun eru 750 þúsund krónur.
Allar nánari upplýsingar um fyrirkomulag Eyrarrósarinnar og umsóknareyðublað má finna á heimasíðu Listahátíðar.