Íslenski safnadagurinn er haldinn hátíðlegur í dag. Yfirskrift dagsins er líkt og fyrri ár „fyrir fjölskylduna“ og bjóða söfn á einhvern hátt og eftir því sem við á upp á dagskrá sem hentar allri fjölskyldunni.
Söfn hafa almennt boðið upp á ókeypis aðgang á þessum degi, sem nýttur hefur verið til að kynna blómlegt, mikilvægt og metnaðarfullt starf íslenskra safna.
Dagskrá safnanna á landsvísu má finna á slóðinni www.safnarad.is en hér að neðan er dagskrá Byggðasafns Árnesinga.
Dagskrá safnanna á Eyrarbakka og Stokkseyri á Íslenska safnadeginum:
Húsið á Eyrarbakka, Byggðasafn Árnesinga – Opið 11-18
Sjóminjasafnið á Eyrarbakka – Opið 11-18
Rjómabúið á Baugsstöðum – Opið 13-18
Þuríðarbúð á Stokkseyri – Opin allan daginn
11-17: Húsið á Eyrarbakka: Sunnlendingar á Ólympíuleikum. Sýning í borðstofu í samstarfi við Héraðssambandið Skarphéðinn. Ljósmyndir og munir frá ferðum sunnlenskra íþróttagarpa á Ólympíuleika í gegnum tíðina. Hvað hefur Vésteinn Hafsteinsson farið á marga Ólympíuleika? Hvað kastaði Sigfús Sigurðsson sleggjunni langt í London 1948? Þessu og mörgu öðru er svarað á sýningunni. Ókeypis aðgangur á safnadaginn.
11-17: Sjóminjasafnið á Eyrarbakka: Draumur um bát. Skipasmíðaverkfæri, skipslíkön og ljósmyndir af ungum og öldnum skipasmiðum á örsýningu í forsal Sjóminjasafnsins á Eyrarbakka. Ókeypis aðgangur á safnadaginn.
13-18: Rjómabúið á Baugsstöðum: Aldargamalt rjómabú með upphaflegum vélum og áhöldum sem framleiddi „Danish butter“ frá 1905 til 1952. Rjómabúið á Baugsstöðum er opið laugardaga og sunnudaga kl. 13-18 í júlí og ágúst. Aðgangseyrir 500 kr..
11: Húsið á Eyrarbakka: Í túni kaupmannsins. Lýður Pálsson safnstjóri leiðir leiðsögn um Húsið og nágrenni þess og greinir frá gamla búsetulandslaginu. Hvað eru margir brunnar við Húsið? Hvað leynist undir yfirborði hólanna tveggja í garði Hússins? Af hverju var Húsinu valinn þessi staður? Hvar byrjar og endar Búðarstígur?
14: Húsið á Eyrarbakka: Tónlistardagskrá í stássstofunni. Heimsókn frá Merkigili á Eyrarbakka. Unga söngparið Jón Tryggvi og Uni flytja nokkur lög í stássstofunni.
Þuríðarbúð á Stokkseyri: Sjóbúð með gamla laginu, reist til minningar um Þuríði Einarsdóttur formann, er opin allan daginn.