Karlakór Selfoss heldur sína árlegu jólatónleika í Skálholti í kvöld, mánudaginn 9. desember og í Selfosskirkju þriðjudaginn 17. desember.
Jólatónleikar Karlakórs Selfoss eru ómissandi viðburður í jólaundirbúningi margra Sunnlendinga, efnisskráin er fjölbreytt og má þar finna ýmiskonar léttmeti ásamt hátíðlegum söng. Eitthvað sem kemur öllum í jólaskapið.
Stjórnandi Karlakórs Selfoss er Skarphéðinn Þór Hjartarson og hefur hann útsett mörg þeirra laga sem á efnisskránni eru. Píanóleikari kórsins er Jón Bjarnason.
Báðir tónleikarnir hefjast klukkan 20. Aðgangur er ókeypis en tekið er á móti frjálsum framlögum sem renna óskipt í Sjóðinn góða. Posi verður á staðnum á báðum tónleikunum.