Kristján Jóhannsson, óperusöngvari, er heiðursgestur á jólatónleikum sem haldnir verða í Skálholtsdómkirkju í kvöld klukkan 20.
Þetta eru hátíðlegir jólatónleikar, þar sem Skálholtskórinn, Kirkjukór Breiðabólstaðarprestakalls, Kirkjukór Odda- og Þykkvabæjarkirkju og Kirkjukór Landeyja koma saman í Skálholti og syngja þekktar perlur aðventu og jólatónlistar sem koma öllum í hátíðarskap. Kristján Jóhannsson mun syngja einsöng með kórunum.
Meðal verka sem flutt verða eru Ave María eftir Sigvalda Kaldalóns, Nóttin var sú ágæt ein, Guðs Kristni í heimi og Ó, helga nótt svo eitthvað sé nefnt. Á tónleikunum munu kórarnir einnig syngja yndislega tónlist eftir John Rutter.
Samtals koma fram um 80 kórsöngvarar. sem syngja allir saman og líka í minni hópum.
Jóhann I. Stefánsson leikur á trompet en organistarnir Jón Bjarnason og Guðjón Halldór Óskarsson stjórna kórunum og leika með á orgel.