Jólin byrja á Laugarvatni

Það verður mikið um dýrðir á Laugarvatni næstkomandi laugardag þegar hinn árlegi ljósadagur verður haldinn.

Klukkan 14:00 opnar jólamarkaður Kvenfélags Laugdæla í Héraðsskólanum að Laugarvatni. Þar mun kvenfélagið selja ilmandi vöfflur, boðið verður upp á blóðsykursmælingu á vegum Lionsklúbbs Laugardals og Lionsklúbburinn mun selja flotkerti.

Klukkan 17:00 verða ljósin tendruð á tré Lionsklúbbsins í Bjarnalundi og barnakórinn mun syngja jólalög. Hálftíma síðar verður gengið niður að vatni í kertafleytingu og þar mun Fontana bjóða gestum og gangandi upp á heitt kakó og smákökur.

Hér á eftir fer viðtal sem Helga Kristín Sæbjörnsdóttir formaður Kvenfélags Laugdæla, tók við Sabínu Steinunni Halldórsdóttur, Laugvetning og þúsundþjalasmið, í undirbúningi jólamarkaðarins og fékk hana til að líta aðeins til baka.

Hefðin sem skapar minningar er sterk
„Þær eru margar ljúfar minningarnar sem koma upp og ekki síður tilfinningar sem tengjast því að upplifa daginn“ segir Sabína Steinunn Halldórsdóttir sem bíður eftirvæntingafull eftir 30. nóvember til að fá að upplifa hann með syni sínum sem endranær.

„Ég hef líklega verið um tvítugt þegar ég upplifði sterkt að mig langaði til að skapa eitthvað og vera þátttakandi á markaðinum sjálfum. Eftir að hafa fylgst með sköpun annarra og handverki þorði ég loksins að vera þátttakandi. Ég bjó í Reykjavík á þessum tíma en hafði komist yfir fallega uppskrift af húfu, Línu langsokk húfu sem ég ákvað að útfæra enn frekar og hannaði „ponsjo“ í stíl“.

Sabína hófst handa við handavinnuna og nýtti nóvemberkvöldin í að sníða og hanna í stærðir og þakkaði fyrir að hafa kynnst Helgu sem kenndi henni og unglingunum á fatasaum í Héraðsskólanum að Laugarvatni. Kennslan hafði greinilega skilað sér því Sabína seldi upp lagerinn á jólamarkaði Kvenfélagsins og fékk fjölda pantana í kjölfarið.

Í dag er hefðin sterk en þegar jólamarkaðnum er lokið og flestir hafa bragðað á funheitri kvenfélagsvöfflu með rjóma tekur við falleg stund í Bjarnalundi. Þar hittast fjölskyldur og vinir ásamt gestum þar sem hópur barna í Bláskógaskóla á Laugarvatni syngur inn jólin og kveikt er á ljósum jólatrésins í lundinum. Eftir fallega og hátíðlega stund í Bjarnalundi er gengið í óskipulagðri skrúðgöngu niður að Laugarvatni og kertum fleytt í minningu aðstandenda, vina, gæludýra eða heimsins eins og hann leggur sig en hver og einn velur sér þann ásetning sem fylgir athöfninni. Fontana gefur gestum og gangandi heitt kakó og smákökur sem er alltaf vel þegið í kuldanum sem fylgir þessari góðu útiveru.

„Á þessu augnabliki í kertafleytinguni og í aðdraganda dagsins upplifir maður tilfinningar sem eru blanda af stolti og líklega monti, einskonar ást á dalnum okkar. Sérstaklega þegar hann mætir okkur í vetrarríki, stillu og sýnir sínar allra bestu hliðar. Fegurðin í logninu, krafturinn og náungakærleikurinn verður áþreifanlegur. Þessar tilfinningar minna mann líka á það liðna, það sem var og blanda af söknuði og ást. Þær tilfinningar staldra styttra við og það birtir fljótt þegar maður sér eftirvæntingu í litlum afleggjara, litlum molanum sem sér fegurðina í litlu hlutunum og minnir á tilgang jólanna. Hátíð barnanna – því fyrir mér byrja jólin á Laugarvatni,“ segir Sabína ennfremur.

Við bjóðum öll velkomin á Laugarvatn til að upplifa með okkur þennan góða dag og taka inn þessi fyrstu skref inn í aðventuna.

Helga Kristín Sæbjörnsdóttir,
formaður Kvenfélags Laugdæla

Fyrri greinHörkutólið frá Hellu
Næsta greinFjölmennur og viðkvæmur hópur sem þolir illa óstöðugleikann