Jón Ingi Sigurmundsson opnar málverkasýningu í samkomuhúsinu Stað á Eyrarbakka laugardaginn 20. júní kl. 14:00. Landslagsmyndir eru í meirihluta en fólki, fuglum og blómum bregður fyrir.
Sýningin verður opin um helgar, til 12. júlí en lokað verður kosningahelgina 25.-29. júní. Auk þess verður að öllum líkindum opið virka daga, þegar upplýsingamiðstöðin er opin.
Auk kennslu og tónlistarstarfa hefur Jón Ingi lengi fengist við myndlist og haldið fjölda einkasýninga, flestar á Suðurlandi en einnig á Norðurlandi og í Danmörku. Jón Ingi hefur sótt ótal námskeið í myndlist hér á landi og að auki hjá Ulrik Hoff í Kaupmannahöfn og hjá bresku vatnslitamálurunum Ron Ranson og Keith Hornblower.
Jón Ingi hlaut menningarverðlaun Árborgar 2011. Fjöldi mynda Jóns Inga eru í eigu einkaaðila, auk ýmissa fyrirtækja og stofnana m.a. Listasafn Árnesinga og Landsbankans.
Vefgallerí: www.joningi.com