Baráttumál, starfsaðstæður og langur og strangur æviferill ljósmóður eru viðfangsefni sýningar sem opnuð verður í Húsinu á Eyrarbakka í dag maí og nefnist „Ljósan á Bakkanum“.
Sýningin fjallar um líf og störf Þórdísar Símonardóttur, ljósmóður á Eyrarbakka 1883-1926. Sjónum verður beint að aðstæðum fæðandi kvenna á þessum tíma, starfsaðstæðum og kjörum ljósmæðra, sem flestar urðu að vinna önnur störf meðfram ljósmóðurstarfinu.
Þórdís var fædd 22. ágúst 1853 að Kvígsstöðum í Andakílshreppi, hún flutti á Eyrarbakka 1883 tæplega þrítug að aldri, bjó þar í hálfa öld og sinnti lengst af ljósmóðurstörfum. Hún lést 1933.
Ljósan á Bakkanum er samstarfsverkefni Byggðasafns Árnesinga, Brúarsmiðjunnar og Eyrúnar Ingadóttur sagnfræðings og höfundar bókarinnar Ljósmóðirin sem kom út á síðasta ári og fjallar um Þórdísi ljósmóður. Höfundur sýningarinnar er Margrét Sveinbjörnsdóttir menningarmiðlari. Styrktaraðilar eru Menningarráð Suðurlands og Safnaráð.
Sýningin er opin alla daga kl. 11-18 og henni lýkur 15. september.