Laugardaginn 19. ágúst klukkan 14:00 heldur tónlistarkonan Myrra Rós tónleika í Sólheimakirkju í Grímsnesi.
Myrra Rós er tónlistarkona úr Hafnarfirði. Hún hefur gefið út tvær plötur undir sínu nafni á vegum þýska útgáfu fyrirtækisins Beste Unterhaltung en þær eru Kveldúlfur (2012) og One amongst others (2015)
Tónlist hennar má lýsa sem draumkenndu lo-fi þjóðlagapoppi þar sem rödd og gítar spila saman aðalhlutverk.