Nemendur GÍH verðlaunaðir fyrir smásögur á ensku

Nemendurnir sem fá sína sögu á sýninguna á bókasafninu. Ljósmynd/Aðsend

Þátttaka í ensku smásagnakeppninni er fyrir löngu orðinn fastur liður í skólastarfi Grunnskólans í Hveragerði.

Þetta er landskeppninni sem haldin er í tilefni af evrópska tungumáladeginum þann 26. september og allir grunnskólar á Íslandi mega taka þátt í.

Nemendur í 5.-10. bekk í GÍH taka þátt á hverju ári og verða smásögurnar að vera skrifaðar á ensku og tengjast ákveðnu þema sem að þessu sinna var orðið FAKE.

Í gær var upplýst hvaða smásögur voru valdar á sýningu sem hefst á bæjarbókasafninu í Sunnumörk í dag og hvaða smásögur þóttu skara framúr í hverjum flokki fyrir sig.

Sigmar Karlsson deildarstjóri elsta stigs og Kolbrún Vilhjálmsdóttir deildarstjóri miðstigs stýrðu athöfninni og afhentu vinningshöfunum glæsileg bókaverðlaun og viðurkenningarskjal fyrir sínar smásögur. Þær smásögur sendir skólinn svo í landskeppnina.

Í flokknum 5. bekkur og yngri fengu eftirtaldir nemendur verðlaun:
The Fake Dog, Magdalena Sigurjónsdóttir 5. AÞJ
The Fake Life, Matthildur Sara Ágústsdóttir 5. AÞJ
Alien in a human’s world, Emilía Guðbjörg Hofland Tryggvadóttir 5. AJK

Í flokknum 6.–7. bekkur fengu eftirtaldir nemendur verðlaun:
The Stolen Sweets, Baltasar Björn Sindrason 6. LH
Mizuki Cat, Snædís Freyja Stefánsdóttir 7. ILH
Brave, Heiðdís Lílja Sindradóttir 6. GH

Í flokknum 8.–10. bekkur fengu eftirtaldir nemendur verðlaun:
Allan, Bryndís Klara Árnadóttir 10. MÍ
Fake Reality, Júlía Dís Sigurðardóttir 10. MÍ
Fake Realities, Hera Fönn Lárusdóttir 8. ERP

Kennararnir í enskudeildinni, þau Genimar Adriana Aranguren Lopez og Ólafur Jósefsson, vilja þakka öllum nemendum kærlega fyrir þátttökuna og óska vinningshöfunum innilega til hamingju.

Fyrri grein„Líkur á neikvæðum afleiðingum aukast eftir því sem verkfallið stendur lengur“
Næsta greinTekinn á tvöföldum hámarkshraða