Ölfus býður upp á beina útsendingu frá tónleikum Jónasar Sig

Jónas Sig. Ljósmynd/Bernhard Kristinn

Í tilefni af 70 ára afmæli Þorlákshafnar býður Sveitarfélagið Ölfus íbúum og öðrum landsmönnum upp á beina útsendingu frá Þorláksmessutónleikum Jónasar Sig í Gamla bíó. Tónleikarnir verða sýndir á RÚV 2 kl. 21 á Þorláksmessukvöld.

Með framtakinu vill Sveitarfélagið þakka íbúum og velgjörðarfólki um land allt þann kraft og samhug sem á stuttum tíma hefur orðið grundvöllur að blómlegu samfélagi með rík tækifæri til framtíðar. Í þeim anda vill Sveitarfélagið gefa fólki tækifæri til að minnast þessara tímamóta í lok afmælisársins og njóta tónlistar Jónasar í flutningi hans og þeirra frábæru tónlistarmanna sem hann starfar með.

Jónas Sigurðsson er eins og flestir vita uppalinn í Þorlákshöfn og sækir þangað sköpunarkraft og orku. Jónas vann til að mynda plötuna Þar sem himin ber við haf með Lúðrasveit Þorlákshafnar sem hann var meðlimur í á sínum yngri árum.

Jónas er fullur tilhlökkunar og sagðist af þessu tilefni ætla að taka sér góðan tíma til að undirbúa skemmtilegar sögur frá uppvaxtarárum sínum í Þorlákshöfn, en Jónas er einmitt þekktur fyrir að gleyma sér í löngum og góðum sögum á milli laga, öllum til mikillar ánægju enda hann ekki einungis stórkostlegur tónlistarmaður heldur einnig frábær sögumaður.

Sveitarfélagið Ölfus óskar íbúum og öðrum landsmönnum gleðilega hátíðar og farsæls komandi árs og biður þá um að njóta útsendingarinnar og minnast með því farsællar sögu samfélagsins í Þorlákshöfn.

Fyrri greinStyrktu Dropann um 1,4 milljónir króna
Næsta greinÓmar Ingi handknattleiksmaður ársins