Páskasýning Byggðasafns Árnesinga í Húsinu á Eyrarbakka er tileinkuð pólskum páskum. Í borðstofu Hússins hefur verið dregið fram það helsta sem fylgir páskahefðum í Póllandi en þar fagna flestir samkvæmt kaþólskum sið.
Á sýningunni má sjá myndskreytt egg sem kallast pisanki, matarkörfu með páskamat sem er blessaður af presti, litríka handgerða vendi sem eru tákn fyrir pálmagreinar og ýmislegt fleira.
Á páskum er föstunni að ljúka og tákn um vorkomu eru víða sjáanleg í páskasiðunum. Sýningin er svo sannarlega í þeim anda.
Monika Figlarska hefur aðstoðað safnið við gerð sýningarinnar.
Sýningin verður opin alla daga kl. 13-17 til annars páskadags. Frítt er í safnið á meðan á sýningu stendur.
Allir velkomnir. Zapraszamy wszystkich serdecznie.