Pólskir menningardagar í Listasafninu

Listakonan Martyna Hopsa er verkefnisstjóri menningardaganna.

Helgina 9.-10. nóvember verða pólskir menningardagar í Listasafni Árnesinga í Hveragerði til að halda upp á þjóðhátíðardag Póllands, sem er 11.11.

Listasafnið hefur fengið til liðs við sig listakonuna og verkefnastjórann Martynu Hopsa, sem býr og starfar í Hveragerði. Hún hefur sett saman hóp af skapandi íslensk/pólskum einstaklingum og fyrirtækjum sem munu koma í Listasafn Árnesinga þessa helgi og kynna starfsemi sína.

„Pólsk myndlist- og menning er mjög áhugaverð og mikilvægt fyrir okkur að kynnast henni betur þar sem að við höfum nú búsetta á Íslandi yfir 20 þúsund manns af pólskum uppruna. Sumir koma í stuttan tíma en sumir hafa sest hér að og eru þau öll mjög mikilvæg í samfélaginu okkar,“ segir Kristín Scheving safnstjóri.

„Listasafnið hefur mikið reynt að ná til pólskumælandi íbúa samfélagsins, til dæmis með því að auglýsa á pólsku og með þessum viðburði viljum við opna enn frekar á samstarf við pólsk/íslenska listamenn og pólska menningu,“ bætir Kristín við.

Eftirtaldir listamenn og skapandi fólk tekur þátt: Marzena Waleszczyk, Misha Martin, Plis Ceramic, Anka Holik, Viola Jak, Julia Bytomska, Reykjavik Letterpress, Milkowska Art, Lukas Bury, MOLO101 Rvk, Martyna Hopsa, Małgorzata Porażewska, Agnieszka Waszczeniuk, Anna Maria Tabaczyńska & Jacek Karwan og Maó Alheimsdóttir.

Fyrri greinUm níu þúsund manns mættu á opnunarhelgina
Næsta greinStórt tap í Dalhúsum