Munasafn RVK Tool Library er að vinna að göfugu verkefni sem felst í því að kynna og koma á fót Reddingakaffi-viðburðum út um allt land.
Munasafnið fékk styrk frá Rannís til að standa að verkefninu en starfsmenn munasafnsins fara um landið og kynna verkefnið, hvað Reddingakaffi viðburðir eru og hvernig á að skipuleggja þá.
Þau verða með kynningu á Selfossi þann 7. júlí kl.14:00 á Bókasafni Árborgar Selfossi. Vinsamlega athugið að kynningin verður á ensku en þau verða með fræðsluefni á íslensku og með í för er Íslendingur sem getur þýtt á milli ef þess er þörf.
Eitt aðal markmiðið með þessu verkefni er að stuðla að sjálfbærara samfélagi með því að nýta kunnáttu þeirra sem kunna að lagfæra allskonar hluti og föt og kenna hana áfram svo að hún deyi ekki út. Með því að laga hluti sem eru þarfnast viðgerðar í staðinn fyrir að henda þeim og kaupa nýja stuðlum við að minni kolvetnismengun og útgjöldin verða minni fyrir einstaklinga. Einnig er markmiðið að kynna réttinn til að lagfæra – „the right to repair“ hreyfinguna og hvers vegna hún er mikilvæg.