Í dag kl. 17:00 verður opnuð sýning á ljósmyndum eftir Guðjón Róbert Ágústsson á Bókasafninu í Hveragerði.
Flestar myndirnar eru teknar á síðustu þremur árum og sýna fjölbreytileika í íslenskri náttúru.
Róbert hefur unnið við ljósmyndun síðan í maí 1965 þegar hann hóf störf á ljósmyndadeild Dagblaðsins Tímans við prentmyndagerð og blaðaljósmyndun. Hann vann á Tímanum og NT fram í júní 1984. Frá þeim tíma hefur hann unnið sjálfstætt sem ljósmyndari og blaðamaður. Róbert hefur búið í Hveragerði síðastliðin tvö ár.
Sýningin verður opin um á opnunartíma bókasafnsins, virka daga kl. 13 – 18:30 og laugardaga kl. 11 – 14. Myndirnar eru til sölu.