Safna fyrir hitaveitutengingu með skötuveislu

Rangárhöllin. Ljósmynd/Rangárþing ytra

Fróðir menn í Rangárþingi ytra segja að það sé fátt betra en að byrja nýtt ár á skötuveislu í góðum félagsskap. Hún verður haldin í Rangárhöllinni föstudagskvöldið 10. janúar 2025 kl. 19:30.

Þetta er í annað sinn sem skötuveislan er haldin en hún er fjáröflunarviðburður fyrir Rangárhöllina. Gaman er að segja frá því að í þetta skiptið er safnað fyrir hitaveitutengingu – sem verður bylting fyrir aðstöðuna!

Á matseðlinum eru kæst skata, saltfiskur, fiskréttur, hamsatólg, kartöflur og rófur. Í eftirrétt er ábrystir með kanil.

Boðið verður upp á sunnlenska skemmtidagskrá af bestu gerð! Hið ómissandi happadrætti verður á sínum stað og eru vinningarnir í hæstu hæðum! Folatollar, gjafabréf og margt fleira!

Miðaverð er 6.000 kr og til þess að tryggja sér miða er hægt að leggja inn á kt. 250867-4769, reikn. 308-13-110146 eða hafa samband í s: 8945003 (Þröstur) eða s: 8630127 (Gústav). Fólk er hvatt til þess að tryggja sér miða í tíma en einnig verður selt inn á staðnum.

Fyrri greinFramkvæmda- og eignanefnd skipuð í Rangárþingi ytra
Næsta greinGrunnþjónusta læknis tryggð næstu tvo mánuði