Jónas Ingimundarson og fleiri listamenn leika á síðustu tónleikum Tóna við hafið árið 2011 í Þorlákskirkju kl. 20 í kvöld.
Jónas er Þorlákshafnarbúum vel kunnur, enda ólst hann þar upp og hefur komið reglulega með fremstu tónlistarmenn þjóðarinnar til að spila fyrir Ölfusinga og nærsveitunga.
Árið 2005 heiðraði menningarnefnd Ölfuss Jónas með menningarverðlaunum í þakklætisskyni fyrir ómetanlega aðstoð hans og hvatningu til framdráttar menningarlífi í sveitarfélaginu.
Tónverkin sem flutt verða á tónleikunum í Þorlákskirkju eru meðal fegurstu kvintetta tónbókmenntanna eftir þá Beethoven og Mozart.
Með Jónasi spila í blásarakvartettinum þeir Matthías Nardeau á óbó, Sigurður Ingvi Snorrason á klarinett, Þorkell Jóelsson á horn og Brjánn Ingason á fagott. Einnig flytja þau Jónas og Auður Gunnarsdóttir sönglög eftir Schubert.
Tónleikarnir hefjast klukkan 20 og er aðgangseyrir 1.500 krónur. Í hléinu verður boðið upp á kaffi, kakó og piparkökur.