Síðasta sýningarhelgi Dagnýjar í Gallery Stokki

Dagný Guðmundsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Um helgina er síðasta sýningarhelgi Dagnýjar Guðmundsdóttur í Gallery Stokki á Stokkseyri. Sýningin Svo grænt! hefur verið uppi í galleríinu í októbermánuði.

„Ég hófst handa í mikilli gleði þegar ég byrjaði að rækta á Skyggnissteini. Gerði allt sem mér datt í hug. Prófaði mig áfram, horfði, gerði tilraunir, lærði. Blandaði saman og reyndi að finna út áhrifin sem það hafði. Fylgdist með hvernig náttúran hagar sér. Nýtti allt sem einhver möguleiki var á. Gamalt dót var endurnýjað eða fékk nýtt hlutverk. Reyndi að skynja tenginguna milli alls. Þetta var mín sköpun,“ segir Dagný.

Á þessari innsetningu er Skyggnissteinn og umhverfið þar viðfangsefnið. Nálgunin er líka sú sama: Gera tilraunir, leika sér, tengja saman, nýta allt. Hafa gaman. Dagný og Inga Jónsdóttir settu sýninguna upp.

Arnhildur Lilý Karlsdóttir samdi örsögur um lífið á Skyggnissteini. Brot úr þeim eru notuð í innsetningunni. Sögurnar í heild sinni eru í kverinu Vist.

Sýningin er opin laugardag og sunnudag frá kl. 13-17. Dagný tekur vel á móti gestum og segir svo skemmtilega frá vinnu sinni af innsetningu sýningarinnar – og að sjálfsögðu er hugað að sóttvörnum í sýningarsalnum.

Fyrri grein1,6 milljón króna í náms- og rannsóknarstyrki
Næsta greinTvö smit á Sólvöllum á Eyrarbakka