Skjálftinn 2023 verður haldinn 9. – 11. nóvember í íþróttahúsinu í Þorlákshöfn. Þetta er í þriðja skipti sem keppnin er haldin.
Að þessu sinni fengu allir skólar á Suðurlandi boð um þátttöku, allt frá Þorlákshöfn að Höfn í Hornafirði að Vestmannaeyjum meðtöldum. Skjálftinn er hæfileikakeppni ungmenna á Suðurlandi og byggir á hugmyndafræði Skrekks sem Reykjavíkurborg hefur haldið fyrir sín ungmenni í meira en 30 ár.
Sem fyrr segir er Skjálftinn nú haldinn í þriðja sinn en í fyrsta skipti án allra covid-takmarkana sem er mikið gleðiefni þar sem nú verður hægt að hafa áhorfendur í sal.
Markmið Skjálftans er að efla sköpunargáfu, kenna ungmennum að hugsa út fyrir rammann, kenna verklag og þjálfa þau í markvissu, langvinnu hópastarfi. Skjálftinn er búinn til til þess að jafna tækifæri ungmenna til náms, óháð búsetu og gefa þeim kost á að kynnast ólíkum störfum innan sviðslista, þar á meðal þeim mikilvægu störfum sem eru unnin á bakvið tjöldin.
Samband sunnlenskra sveitarfélaga styrkir verkefnið sem sem og Sveitarfélagið Ölfus og þá er RÚV einnig samstarfsaðili. Skjálftanum er sem fyrr stýrt af Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur.