Hljómsveitin Skuggamyndir frá Býsans heldur tónleika í Skyrgerðinni í Hveragerði í kvöld,
fimmtudagskvöldið 17. október kl. 20:30.
Hljómsveitin leikur Balkantónlist sem er þjóðlagatónlist frá Búlgaríu, Makedóníu, Tyrklandi og Grikklandi. Balkantónlist er gríðarlega fjörug, tilfinningarík og dulúðleg á köflum.
Skuggamyndir frá Býsans á tíu ára afmæli á næsta ári og hefur leikið á yfir 300 viðburðum á Íslandi, Færeyjum og Makedóníu við frábæran orðstír, gefið út tvo geisladiska og einn DVD disk frá tónleikum í Eldborg 2015.
Nú er um að gera fyrir Sunnlenndinga að reima á sig dansskónna og gíra sig upp í tryllta gleði á Skyrgerðinni þetta kvöld.
Hljómsveitina skipa þeir Haukur Gröndal klarinett, Ásgeir Ásgeirsson ýmis austræn strengjahljóðfæri, Þorgrímur Jónsson bassi og Erik Qvick slagverk.
Miðaverði er stillt í hóf en það er 2000 kr.