Það er stór vika framundan í Bókakaffinu, Austurvegi 22 á Selfossi, þar sem stórkanónur úr bókmenntaheiminum mæta á fimmtudagskynningu og á sunnudag verða svo Snuðra og Tuðra á staðnum og skemmta ásamt Dórótheu Ármann barnabókarhöfundi. Í Bókakaffinu er gætt vel að sóttvörnum og aldrei mjög margir inni á staðnum í senn.
Snuðra og Tuðra (Hera og Elín) mæta í Bókakaffið klukkan 14 sunnudaginn 12. des. og verða þar í jólaskapi, spila á píanóið og syngja jólalög. Þá mætir Dóróthea Ármann í Friðheimum sem sent hefur frá sér bókina Jólahátíð í Björk.
Fimmtudagskvöldið 9. des. mætir stórsveit rithöfunda og les upp en þeir sem vilja mæta eru vegna sóttvarna beðnir um að skrá sig til þátttöku á netfanginu bokakaffid@bokakaffid.is eða um síma 482 3079. Aðeins 25 gestasæti eru í húsinu og því ekki hætta á örtröð en þeir sem eru seinir með skráningu gætu orðið af því fá sæti.
Höfundarnir sem mæta að þessu sinni eru reynsluboltarnir Þórarinn Eldjárn og Bergsveinn Birgisson, ungskáldin Harpa Rún Kristjánsdóttir og Ingólfur Eiríksson og svo síðast en ekki síst þær stöllur dr. Berglind María Tómasdóttir og hennar hliðarsjálf Rockriver Mary. Upplestur og uppákomur margskonar. Kakó, smákökur og jólastemning.
- Höfundarnir kynna eftirtalin verk:
Tvísöngur á bók, geisladisk og segulbandsspólu – Berglind María Tómasdóttir
Ingólfur Eiríksson – Stóra bókin um sjálfsvorkunn
Harpa Rún Kristjánsdóttir – Kynslóð
Bergsveinn Birgisson – Kolbeinsey
Þórarinn Eldjárn – Umfjöllun