Kammerhópurinn Stilla heldur tónleika í Selinu á Stokkalæk í dag kl. 16.
Yfirskrift tónleikanna er: „Tónlist frá ýmsum löndum – Rússland, Frakkland, Ítalía, Svíþjóð, Ísland, Rúmenía og Írland“
Kammerhópurinn Stilla er skipaður strengjakvartett og söngvurum. Samsetning hópsins býður upp á marga möguleika og er efnisskrá hópsins því fjölbreytt og skemmtileg. Á tónleikunum verða leikin allt frá eldfjörugum þjóðlögum til hádramatískra sönglaga, auk þess sem dúettar og tríó úr heimi óperunnar fá að hljóma.
Flutt verða verk eftir Rachmaninoff, Bellini, Sibelius, Bizet o.fl. auk íslenskra söngperla eftir Karl O. Runólfsson, Atla H. Sveinsson og Sigfús Halldórsson. Strengjakvartettinn flytur svo fjöruga þjóðdansa í eigin útsetningum.
Hvað er betra en laugardagsbíltúr út fyrir ys og þys bæjarins og njóta góðrar tónlistar í fallegu umhverfi?