Leikfélagið Borg sýnir um þessar mundir leikritið Svarta kómedían í félagsheimilinu Borg í Grímsnesi.
Á sýningunni fimmtudaginn 28. nóvember næstkomandi, sem er bandaríski þakkargjörðardagurinn, ætlar leikfélagið að gefa allan ágóða af miðasölu þeirrar sýningar til Sjóðsins góða, til að leggja sitt að mörkum að sem flestir geti haldið hátíðleg jól.
Svarta kómedían er þýdd af Vigdísi Finnbogadóttur og er í leikstjórn Sindra Mjölnis. Sýningarfjöldi er takmarkaður og eftir sýninguna 28. nóvember verða einungis tvær sýningar, dagana 1. og 7. desember.
Leikfélagið Borg er 10 ára á næsta ári og er þetta sjötta verkið sem félagið setur á svið.