Sumarlestur í Sunnulækjarskóla

Bókasafn Sunnulækjarskóla. sunnlenska.is/Dýrleif Nanna Guðmundsdóttir

Líkt og síðastliðin sumur mun skólasafn Sunnulækjarskóla efna til lestrarátaks í sumarfríinu. Markmið sumarlesturs er að viðhalda lestrarhæfni nemenda og örva lestrarvenjur þeirra. Stuðla þarf með öllum ráðum að yndislestri barna og auka áhuga þeirra á lestri sér til skemmtunar því hætta er á að lestrarfærnin dali ef hún er ekki þjálfuð yfir sumartímann.

Átakið gengur út á að allir nemendur sem lesa að minnsta kosti eina bók í sumarfríinu skili inn sumarlestrarmiða á bókasafnið í upphafi haustannar. Úr þessum miðum verða svo dregnir vinningshafar. Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að styðja við átakið heimavið, enda er þróun læsis barna langtímaferli og góður lesskilningur undirstaða námsárangurs hvers og eins.

Í september, þegar skólinn er hafinn að nýju, verða síðan dregnir út vinningar fyrir þá sem tóku þátt í sumarlestrinum. Miðum verður dreift í skólanum. Það er þó ekki hægt að skila inn fleiri en einum miða á nemenda.

Fyrirtæki í Árborg hafa styrkt lestrarátakið veglega með vinningum og eru þeim færðar bestu þakkir fyrir.

Fyrri greinFimm gullverðlaun og héraðsmet á Vormóti Fjölnis
Næsta greinGígja Marín átti besta frumsamda lagið í Skúrnum