Summa & Sundrung verðlaunuð í Tékklandi

Frá verðlaunaafhendingunni í Prag þann 19. nóvember síðastliðinn.

Sýningin Summa & Sundrung með listamönnunum Steinu, Woody Vasulka og Gary Hill og var framleidd af Listasafni Árnesinga og House of Arts Brno hlaut á dögunum fyrstu verðlaun hjá menningarmálaráðuneytinu í Tékklandi sem besta alþjóðlega myndlistarsýningin á síðasta ári.

Sýningin ferðaðist frá Hveragerði og yfir til House of Arts, í Brno í Tékklandi en hún var samstarfsverkefni þessara tveggja stofnana.

Sýningarstjórar sýningarinnar voru Halldór Björn Runólfsson, Jennifer Helia Defelice og Kristín Scheving og segir Kristín að það sé afar ánægjulegt að sýningin hafi hlotið þessi verðlaun.

Styrktaraðilar sýningarinnar voru Safnaráð, Uppbyggingarsjóður Suðurlands, Thoma Foundation, BERG Contemporary, Hveragerðisbær, Brno borg, menningarsjóður Tékklands og Vasuka Kitchen Brno.

Hér er hægt að skoða sýningarskrá, hlusta á leiðsögn Gary Hills og fleira.

Listasafn Árnesinga. Ljósmynd/Aðsend
Fyrri greinSkuggi yfir framtíð ferðaþjónustu í Ölfusi
Næsta greinEinstakir jólatónleikar í Skálholtsdómkirkju