Te og teikning á bókasafninu

Barnabókadeildin í bókasafninu á Selfossi. Ljósmynd/Aðsend

Í dag klukkan 16 verður viðburður á Bókasafni Árborgar á Selfossi sem nefnist te og teikning.

Boðið verður upp á te og kaffisopa en leiðbeinandinn við teikninguna er hin portúgalska Hada. Hún talar ensku og smá íslensku og restin verður látbragðsleikur.

Þarna verður fínt að koma við og teikna og fá sér tesopa áður en kveikt verður á jólaljósunum í miðbæ Selfoss kl. 18:00.

Fyrri greinJólamarkaður MFÁ í kvöld
Næsta greinMölunarverksmiðja eða umhverfisvæn matvælaframleiðsla