Á fullveldisdaginn, 1. desember, verður ókeypis inn á nýja sýningu í gestastofu þjóðgarðsins á Þingvöllum. Gestum gefst færi á að spyrja starfsfólk út í sýninguna og Þingvelli.
Klukkan 11 verða afhjúpuð fræðsluskilti á nýju sýningunni sem lýsa hvernig friðunarhugmyndir Þingvalla mótast um líkt leyti og Ísland verður fullvalda þjóð 1918.
Klukkan 14 er hátíðarguðsþjónusta í Þingvallakirkju og mun sr. Kristján Valur Ingólfsson þjóna fyrir altari. Organisti er Guðmundur Vilhjálmsson.